13.02.2009 10:55
Íbúð til leigu
67+ fm. 112 Reykjavík. Mikil lofthæð og mikið útsýni.
Falleg og kósý íbúð á 3. hæð/efstu. Utanáliggjandi stigagangur, og sérinngangur í íbúð.
Íbúðin er 67+ fm. með mikilli lofthæð. Innifalið í þeirri fermetratölu er sameiginlegt þvottarhús (á hæðinni) og geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í eldhús og stofu hvoru tveggja með plankaparketi, svefnherbergi með góðu skápaplássi og plankaparketi á gólfi. Baðherbergi með ljósum flísum, baðkar með sturtu. Stórar og rúmgóðar suð-vestur svalir. Stór þakgluggi. Að auki er 9 fm milliloft sem er notað sem svefnherbergi/tölvu-bókaherbergi. Íbúðin býður upp á fallegt útsýni yfir Reykjavík, Viðey og Snæfellsnesið. Eignin er staðsett innst í botnlanga. Sameiginlegur rótgróinn garður, fjölskylduvænt umhverfi. Stutt í leikskóla, grunnskóla, verslun. Langtímaleiga.
Leiguverð er 90.000 kr. Hússjóður, hiti og rafmagn innifalið. Leiga er ekki vísitölutengd.
Íbúðin er reyklaus. Dýrahald er samkomulags atriði.
- 1